Rose heldur efsta sætinu

Dustin Johnson.
Dustin Johnson. AFP

Englendingurinn Justin Rose heldur efsta sæti heimslistans í golfi þótt Dustin Johnson hafi sigrað í Mexíkó á sunnudag. Ariya Jutanugarn frá Tælandi er efsta sæti hjá konunum. 

Johnson fór þó upp um sæti úr þriðja í annað sæti listans. Justin Thomas er í þriðja sæti og Brooks Koepka sem vann tvö risamót af síðustu þremur er í fjórða sæti. Tiger Woods er nú í 12. sæti listans. 

Sung Hyun Park frá Suður-Kóreu er í öðru sæti listans og Minjee Lee frá Ástralíu í þriðja.

Ariya Jutanugarn.
Ariya Jutanugarn. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert