Haraldur í 10. sæti

Haraldur Franklín Magnús
Haraldur Franklín Magnús AFP

Haraldur Franklín Magnús varð efstur íslensku kylfinganna á SGT Winter Series Lumine Hills mótinu á Nordic mótaröðinni en hann hafnaði í 10. sæti. Mótinu lauk í gær og var spilað á Spáni eins og gert er á þessum árstíma. 

Haraldur lék á 68, 74 og 68 höggum sem er fimm högg undir pari vallarins. Guðmundur Ágúst Kristjánsson hefur verið sjóðandi heitur í upphafi tímabilsins en hann lék á 72, 69 og 73. 

Andri Þór Björnsson, Aron Bjarki Bergsson og Axel Bóasson komust ekki í gegnum niðurskurðinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert