Valdís á tveimur yfir pari

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/LET

Valdís Þóra Jónsdóttir lék fyrsta hringinn á Canberra Classic-mótinu í golfi í Ástralíu í nótt á tveimur höggum yfir pari en mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna.

Valdís Þóra fékk þrjá fugla, þrjá skolla og fékk skramba á einni holunni. Hún er í 69.-83. sæti en ekki hafa allir kylfingar lokið fyrsta hringnum.

Amelia Lewis frá Bandaríkjunum er með forystu eftir fyrsta hringinn en hún er sex höggum undir pari.

Staðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert