Ólafía með í Symetra-atvinnumótaröðinni

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/LPGA

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal keppenda á SKYIGOLF-meistaramótinu sem fram fer í Bandaríkjunum dagana 7.-10. mars.

Mótið er hluti af Symetra-atvinnumótaröðinni sem er næststerkasta atvinnumótaröðin í Bandaríkjunum og verður mótið það fyrsta hjá Ólafíu Þórunni á mótaröðinni á þessu ári.

Ólafía er ekki með fullan keppnisrétt í LPGA-mótaröðinni en með góðum árangri í Symetra-mótaröðinni gæti hún tryggt sér keppnisrétt á LPGA á næsta tímabili. Tíu stigahæstu kylfingarnir á Symetra-stigalistanum fá keppnisrétt á LPGA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert