Tiger ekki með vegna meiðsla

Tiger Woods.
Tiger Woods. AFP

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur neyðst til að hætta við þátttöku á Arnold Palmer Invitational-mótinu í golfi sem hefst í vikunni.

„Því miður vegna meiðsla í hálsi sem ég hef haft undanfarnar vikur þarf ég að draga þátttöku mína til baka á Arnold Palmer Invitational-mótinu. Ég er búinn að vera í meðferð en ég hef ekki náð að lagast nógu mikið til að geta spilað,“ skrifar Woods á Twitter-síðu sína.

Woods hefur átt góðu gengi að fagna á þessu móti, átta sinnum hefur hann fagnað sigri á því en hann hefur átján sinnum tekið þátt í mótinu sem spilað er á Bay Hill í Flórída.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert