McIlroy í 4. sæti heimslistans

Rory McIlroy
Rory McIlroy AFP

Norður-Írinn Rory McIlroy fór upp í 4. sæti heimslistans í golfi eftir sigurinn á Players Championship í gærkvöldi. McIlroy var í 6. sæti og fór upp um tvö sæti á listanum. 

Fór hann upp fyrir Justin Thomas og Bryson DeChambeau sem eru í 5. og 6. sæti. Dustin Johnson er efstur, Justin Rose í 2. sæti og Brooks Koepka í 3. sæti listans. 

Sung Hyun Park frá Suður-Kóreu er í efsta sæti hjá konunum en Ariya Jutanugarn er ekki langt á eftir. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í 349. sæti listans en hefur fallið niður listann þar sem hún er ekki byrjuð að keppa á árinu. Valdís Þóra Jónsdóttir er í 405. sæti listans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert