Ólafía keppir ekki við Wie

Michelle Wie þarf lengri tíma til að jafna sig af …
Michelle Wie þarf lengri tíma til að jafna sig af sínum meiðslum. AFP

Bandaríska golfstjarnan Michelle Wie hefur neyðst til þess að hætta við að keppa á US Open sem hefst næsta fimmtudag.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er meðal þeirra sem keppa á mótinu en Wie verður ekki með vegna meiðsla sem hún hefur glímt við í hálft ár eða svo.

„Þrátt fyrir að mér miði í rétta átt í mínu bataferli þá hef ég ákveðið að draga mig úr keppni á US Open. Þetta var erfið ákvörðun því ég var búin að hlakka til mótsins allt árið en heilsa mín og bati er í forgangi,“ sagði Wie í yfirlýsingu.

Wie gekkst undir aðgerð á hendi í lok síðasta árs og sneri svo aftur á Honda LPGA-mótinu í Taílandi í febrúar. Meiðslin tóku sig hins vegar upp aftur hjá þessum 29 ára kylfingi sem vann US Open árið 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert