Stórglæsilegur hringur og Woodland efstur

Gary Woodland lék afar vel og fór á toppinn.
Gary Woodland lék afar vel og fór á toppinn. AFP

Bandaríkjamaðurinn Gary Woodland fór á kostum á öðrum hring á Opna banda­ríska meist­ara­mót­inu í golfi. Hann lék á 65 höggum, eða sex höggum undir pari og er hann með tveggja högga forystu á Justin Rose.

Woodland fékk sex fugla og ekki einn einasta skolla á 18 holum í gær og lék af fádæma öryggi. Rose lék á 70 höggum og fékk þrjá fugla og tvo skolla á hringnum. Louis Oosthuizen er í þriðja sæti á sex höggum undir pari. 

Tiger Woods er sem stendur í 48. sæti á tveimur höggum yfir pari. Hann er byrjaður á þriðja hring, þar sem hann hefur fengið einn skolla á fyrstu þremur holunum. 

Woodland hefur unnið þrjú mót á PGA-mótaröðinni á ferlinum, en besti árangurinn hans á risamóti kom í fyrra á PGA-meistaramótinu. Þá hafnaði hann í sjötta sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert