Ólafía byrjar ágætlega í Ohio

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir byrjar ágætlega á Prasco Charity Championship-mótinu í golfi. Hún er hálfnuð með fyrsta hring af þremur og er íþróttamaður ársins 2017 á einu höggi undir pari. 

Mótið er hluti af Symetra-mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Bandaríkjunum. Ólafía fékk fugl á annarri og áttundu holu en skolla á sjöundu holu. Hún fékk par á hinum fimm holunum. Ólafía er í 19. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum. 

Patty Tavatanakit frá Taílandi er með mikla yfirburði í efsta sæti á átta höggum undir pari, fjórum höggum fyrir ofan Kenda Dalton og Erin Harper frá Bandaríkjunum og Min Seo Kwak frá Suður-Kóreu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert