Ólafía í gegnum niðurskurðinn

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mbl.is/Árni Sæberg

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst í gegnum niðurskurðinn á Prasco Cha­rity Champ­i­ons­hip-mót­inu í golfi. Mótið er hluti af Sy­metra-mótaröðinni, sem er sú næst­sterk­asta í Banda­ríkj­un­um.

Íþróttamaður ársins 2017 lék á 72 höggum í dag, rétt eins og í gær og er hún á parinu eftir tvo hringi. Eins og á fyrsta hring, fékk hún tvo skolla og tvo fugla á holunum átján.

Ólafía byrjaði á tíundu holu og fékk fugl á fimmtándu holu, en skolla á þeirri sautjándu. Hún lék stöðugt golf og fékk pör fram að áttundu, þar sem hún fékk fugl, en hún endaði hringinn á skolla á níundu holu. 

Þriðji og síðasti hringur mótsins fer fram á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert