Ólafía með á LPGA-móti í vikunni

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal keppenda á  Thornberry Creek mótinu í golfi sem hefst á fimmtudaginn en mótið er hluti af LPGA mótaröðinni.

Þetta kemur fram á kylfingur.is en mótið verður það fjórða sem Ólafía Þórunn tekur þátt í á LPGA-mótaröðinni á þessu tímabili en hún er með takmarkaðan þátttökurétt á þessari sterkustu mótaröð heims á þessu tímabili.

Ólafíu tókst ekki að komast í gegnum niðurskurðinn á þeim þremur mótum í LPGA-mótaröðinni sem hún hefur verið með í á þessu tímabili.

Um síðustu helgi keppti Ólafía á Prasco Cha­rity mót­inu sem er hluti af Sy­metra at­vinnu­mótaröðinni þar sem henni tókst að komast í gegnum niðurskurðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert