Guðmundur Ágúst í eldlínunni á Áskorendamótaröðinni

Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Kylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson verður á meðal keppenda á Slovakia Challenge mótinu sem hefst í Slóvakíu á morgun en móti er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu, næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.

Guðmundur Ágúst er ekki með keppnisrétt á þessari mótaröð en hann var í hópi 50 keppenda sem fengu sérstakt boð um að taka þátt á þessu móti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert