Slæmur kafli Ólafíu á þriðja hring

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði þriðja hringinn Marathon Classic-mótinu í Ohio í dag en það er hluti af LPGA-mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi. Hún komst í gegnum niðurskurðinn í gær í fyrsta sinn á mótaröðinni á þessu tímabili.

Á þriðja hringnum í dag fékk Ólafía sex skolla, þar af fimm skolla á aðeins sex holu kafla, og tvo fugla. Hún lék því samtals á fjórum höggum yfir pari, á 75 höggum, sem er sama skor og á öðrum hring í gær.

Ólafía kom í hús í 77. sæti á fimm höggum yfir pari samanlagt, en fjölmargir kylfingar eiga eftir að ljúka leik á þriðja hringnum í dag og þeir efstu eru ekki einu sinni komnir af stað. Fjórði og síðasti hringurinn er leikinn á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert