Kim hrósaði sigri - Ólafía í 74. sæti

Kim Sei-young með verðlaunagripinn.
Kim Sei-young með verðlaunagripinn. AFP

Kim Sei-young frá Suður-Kóreu hrósaði sigri á Marathon Classic-mótinu í golfi sem lauk í kvöld en Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var á meðal keppenda og komst í gegnum niðurskurðinn á sínu fyrsta móti í LPGA-mótaröðinni á þessu tímabili.

Kim Sei-young lauk keppni á 262 höggum eða á 22 höggum undir pari Hún varð tveimur höggum á undan Lexi Thompson frá Bandaríkjunum og Stacy Lewis frá Bandaríkjunum hafnaði í þriðja sæti, sex höggum á eftir sigurvegaranum.

Ólafía Þórunn endaði í 74. sæti á fimm höggum yfir pari en hún lék lokahringinn í dag á pari.

Lokastaðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert