Aðeins þrír á verra skori en McIlroy

Rory McIlroy.
Rory McIlroy. AFP

Norður-Írinn Rory McIlroy hefur lokið leik á fyrsta hringnum á The Open á Royal Portrush-vell­in­um á Norður-Írlandi.

McIlroy , sem margir höfðu spáð að yrði í baráttu um sigurinn á mótinu, átti afleitan dag en hann lék hringinn á 79 höggum eða á átta höggum yfir pari. Af þeim kylfingum sem hafa lokið leik í dag eru aðeins þrír með hærra skor en Norður-Írinn.

Ófarir  McIlroy hófust strax á fyrstu holunni sem hann lék á fjórum höggum yfir pari en honum tókst aðeins að næla í tvo fugla á holunum átján.

Staðan á mótinu er uppfærð hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert