Holmes lék á þremur undir pari

J.B. Holmes spilaði flott golf í dag og heldur því …
J.B. Holmes spilaði flott golf í dag og heldur því efsta sætinu á The Open eins og sakir standa. AFP

Kylfingurinn J.B. Holmes var að ljúka sínum öðrum hring á The Open sem nú fer fram á Royal Portrush-vellinum á Norður-Írlandi. Bandaríkjamaðurinn lék á samtals 68 höggum og var á þremur undir pari.

Holmes lék fyrsta hringinn á fimm höggum undir pari og var í efsta sæti fyrir annan daginn en hann er áfram í efsta sæti, ásamt Íranum Shane Lowry, á átta höggum undir pari. Lowry hefur leikið sex holur í dag en Englendingarnir Tommy Fleetwood og Lee Westwood koma næstir á sjö höggum undir pari.

Fleetwood hefur lokið keppni í dag en Westwood er á sautjándu braut og á því eina holu eftir. Alls eru þrír kylfingar jafnir í 5.-7. sæti á sex höggum undir pari og þá eru fjórir kylfingar jafnir á fimm höggum undir pari í 8.-11. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert