Hörkubyrjun hjá Lowry

Shane Lowry fer hrikalega vel af stað á öðrum hring …
Shane Lowry fer hrikalega vel af stað á öðrum hring sínum á The Open. AFP

Kylfingurinn Shane Lowry fer mjög vel af stað á öðrum hring sínum á The Open sem nú fer fram á Royal Portrush-vellinum á Norður-Írlandi. Írinn Lowry hefur leikið þrjár holur í dag og hefur fengið fugl á þeim öllum og er samtals á sjö höggum undir pari.

Lowry lék fyrsta daginn á fjórum höggum undir pari og var í öðru sæti eftir fyrsta keppnisdaginn en hann er nú jafn við Englendinginn Tommy Fleetwood í 2.-3. sæti á sjö höggum undir en Fleetwoow hefur lokið keppni í dag.

Bandaríkjamaðurinn J.B. Holmes er enn þá með eins höggs forystu á þá Lowry og Fleetwood en hann er á sautjándu braut og á því tvær holur eftir í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert