Thomas nálgast efstu menn

Justin Thomas nálgast efstu kylfingana.
Justin Thomas nálgast efstu kylfingana. AFP

Justin Thomas fer gríðarlega vel af stað á fjórða og síðasta hring Opna móts­ins á Royal Portrush-vell­in­um á Norður-Írlandi í dag. Thomas er búinn með átta holur og fengið á þeim fjóra fugla og fjögur pör. 

Hann er á samtals átta höggum undir pari, átta höggum á eftir Shane Lowry frá Írlandi, sem er með forystu fyrir lokadaginn. Ríkjandi meistarinn Francesco Molinari átti góðan lokadag í dag. Hann lék á fimm höggum undir pari og fékk m.a örn á 12. holu. 

Tveir efstu kylfingarnir eru að fara af stað á lokahringnum. Shane Lowry er á 16 höggum undir pari og Tommy Fleetwood á 12 höggum undir pari. Á eftir þeim koma Lee Westwood og Justin Rose á níu höggum undir pari. 

Rose er búinn að fá par á fyrstu tveimur holunum og Weestwood einn skolla og tvo fugla á fyrstu þremur holunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert