Valdís í afar vænlegri stöðu

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir.

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir er í afar vænlegri stöðu fyrir lokahringinn á 1. stigs úrtökumóti fyrir LPGA-mótaröðina, þá sterkustu í heimi, í Kaliforníu. Valdís er á einu höggi undir pari eftir fyrstu þrjá hringina og komst hún örugglega í gegnum niðurskurðinn. 

Hún er í 36. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum, en 95 efstu kylfingarnir komast áfram á 2. stig úrtökumótsins. Niðurskurðurinn miðast sem stendur við þrjá yfir parið og þarf Valdís því að halda uppteknum hætti til að komast örugglega áfram á næsta stig. 

Valdís fer af stað á lokahringnum kl. 19:10 að íslenskum tíma í kvöld og lýkur því væntanlega leik í kringum miðnætti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert