Frábær hringur hjá Rúnari á úrtökumóti í Þýskalandi

Rúnar Arnórsson lék frábært golf í dag.
Rúnar Arnórsson lék frábært golf í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rúnar Arnórsson, kylfingur úr Keili, lék frábærlega á öðrum hringnum á 1. stigs úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð karla í Fleesensee í Þýskalandi í dag en sex Íslendingar eru á meðal keppenda.

Rúnar lék best allra kylfinga á mótinu í dag; lék á sjö höggum undir pari og er í 4.-5. sæti á samtals sex höggum undir pari. Rúnar fékk einn örn, átta fugla og þrjá skolla.

Bjarki Pétursson er í 13. sæti á þremur höggum undir pari en hann lék í dag á þremur höggum undir pari.

Andri Þór Björnsson, Ragnar Már Garðarsson og Axel Bóasson er allir á parinu eftir tvo fyrstu hringina og eru í 29.-40. Aron Snær Júlíusson er jafn í 41. sæti á einu höggi yfir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert