Valdís Þóra hafnaði í 19. sæti

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir.

Valdís Þóra Jónsdóttir hafnaði í 19. sæti á opna Lacoste Ladies Open-mót­inu í golfi í Frakklandi en mótið er hluti af LET-Evr­ópu­mótaröðinni, þeirri sterk­ustu hjá at­vinnukylf­ing­um í Evr­ópu í kvenna­flokki.

Valdís lék fjórða og síðasta hringinn í dag á 71 höggi, eða á pari. Hún lék samanlagt á tveimur höggum yfir pari. Valdís byrjaði illa og lék fyrsta hringinn á 79 höggum, en bætti upp fyrir það með stórgóðum öðrum hring er hún lék á 66 höggum. 

Hún lék svo síðustu tvo hringina af öryggi og á samtals einu höggi undir pari. Nelly Korda frá Bandaríkjunum vann sannfærandi sigur. Hún lék samanlagt á fimmtán höggum undir pari, átta höggum betur en Celine Boutier frá Frakklandi sem varð önnur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert