Guðrún og Berglind jafnar eftir fyrsta hring

Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Guðrún Brá Björgvinsdóttir Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Berglind Björnsdóttir eru jafnar á tveimur höggum yfir pari eftir fyrsta hring á Rügenwalder Mühle Ladies Open-mótinu í golfi. Mótið er hluti af LET Access-mótaröðinni, þeirri næststerkustu í Evrópu. 

Guðrún og Berglind léku báðar á 74 höggum og eru í 36. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum. Guðrún fékk tvo fugla, tvo skolla og einn tvöfaldan skolla. Berglind fékk þrjá fugla og fimm skolla. 

Eru þær báðar tveimur höggum fyrir ofan niðurskurðslínuna, en skorið er niður eftir tvo hringi. Alls eru fjórir hringir á mótinu. Laura Murray frá Skotlandi er efst á átta höggum undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert