Haraldur Franklín Magnús endaði í öðru sæti á Lindbyvätten Masters-mótinu í golfi sem lauk í Svíþjóð í dag en mótið var hluti af Nordic Golf-mótaröðinni.
Haraldur Franklín lék þriðja og síðasta hringinn í dag á 70 höggum eða á tveimur höggum undir pari. Hann lauk þar með keppni á 14 höggum undir pari og hafnaði í öðru sæti á eftir Svíanum Tobias Ruth, sem lék á 16 höggum undir pari.
Á lokahringnum í dag fékk Haraldur þrjá fugla og einn skolla og lék aðrar holur á pari vallarins.