Slæmur lokahringur fór illa með Valdísi

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir.

Valdís Þóra Jónsdóttir hafnaði í 57. sæti á Estrella Damm Mediterranean Ladies Open-mótinu á Evrópumótaröðinni. Fjórði og síðasti hringurinn var leikinn í gær og fór Valdís illa að ráði sínu. 

Valdís var í 36. sæti fyrir hringinn, en lék á níu höggum yfir pari í gær og féll niður um tæp 30 sæti. Hún lék á samanlagt 15 höggum yfir pari. 

Valdís fékk sjö skolla, þrjú pör og tvo tvöfalda skolla á átján holum og því um afar skrautlegan hring að ræða. 

Carlota Ciganda frá Spáni vann á átta höggum undir pari og Esther Henseleit frá Þýskalandi varð önnur á sjö höggum undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert