Fowler kemur inn í liðið

Rickie Fowler
Rickie Fowler AFP

Rickie Fowler hefur verið tekinn inn í bandaríska landsliðið í golfi sem keppir gegn heimsúrvalinu (utan Evrópu) í Presidents Cup. 

Efsti kylfingur heimslistans Brooks Koepka dró sig út úr bandaríska liðinu vegna meiðsla. Um meiðsli í vinstra hné er að ræða hjá Koepka sem hann varð fyrir í S-Kóreu í október.

Keppt verður um forsetabikarinn 12. - 15. desember. 

Brooks Koepka
Brooks Koepka AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert