Goðsagnir gætu mæst þrátt fyrir faraldur

Phil Mickelson og Tiger Woods.
Phil Mickelson og Tiger Woods. AFP

Kylfingurinn Phil Mickelson staðfesti á Twitter í dag að viðræður stæðu yfir um einvígi á milli hans og Tigers Woods þrátt fyrir að kórónuveiran geisar yfir mannkynið.

Mættust þeir í svipuðu einvígi árið 2018 og hafði Michelson betur og vann sér inn níu milljónir dollara, en sama verðlaunafé verður undir í ár, verði að einvíginu. 

Michelson var spurður út í orðróma þess efnis að hann og Tiger myndu mætast aftur. „Við erum að vinna í því. Þetta er raunverulegt,“ svaraði hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert