Ólafía stefnir á annan sigurinn í röð

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Ljósmynd/seth@golf.is

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í forystu eftir fyrsta hringinn á Golfbúðarmótinu í golfi sem hófst á Hólmsvelli í Leiru í dag. Um er að ræða annað mótið á mótaröð Golfsambands Íslands á árinu 2020 en nær allir bestu kylfingar landsins taka þátt.

Ólafía lék á 74 höggum í dag, tveimur höggum yfir pari, og er einu höggi á undan Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. Þá koma þær Saga Traustadóttir, Eva Karen Björnsdóttir og Andrea Ýr Ásmundsdóttir næstar á fimm höggum yfir pari.

Ólafía bar sjálf sigur úr býtum á fyrstu keppni í mótaröðinni þegar hún vann B59 Hótel-mótið á Akranesi eftir æsispennandi lokahring. Þar hafði hún betur gegn Val­dísi Þóru Jóns­dótt­ur sem er ekki með að þessu sinni. Stöðuna í mót­inu má sjá með því að smella hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert