Tiger snýr aftur í næstu viku

Tiger Woods
Tiger Woods AFP

Atvinnukylfingurinn Tiger Woods snýr aftur í næstu viku þegar hann tekur þátt á Memorial-mót­inu í PGA-mótaröðinni en hann hefur ekkert keppt síðan í febrúar, vegna meiðsla og kórónuveirufaraldursins.

Fimm mót hafa farið fram á PGA-mótaröðinni síðan keppni hófst aftur eftir kórónuveiruna en Tiger hefur verið fjarri góðu gamni vegna meiðsla í baki. „Ég get ekki beðið eftir að byrja aftur. Ég hlakka til að keppa við strákana og mér líður vel,“ skrifaði Tiger á Twitter-síðuna sína en hann hefur unnið Memorial-mótið oftar en allir aðrir, fimm sinnum, síðast árið 2012.

Memorial-mótið er gjarn­an sterkt og þar spil­ar inn í að gest­gjafi móts­ins er sjálf­ur Jack Nicklaus sem fær stjörn­urn­ar til að mæta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert