Íslandsmótið fer fram samkvæmt áætlun

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi í kvennaflokki.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi í kvennaflokki. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslandsmótið í golfi mun fara fram 6.-9. ágúst á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar eða samkvæmt áætlun. Stjórnvöld samþykktu tillögur Golfsambands Íslands um að leika keppnisgolf og jafnframt virða sóttvarnareglur. 

Var það gert í ljósi hertra sóttvarnaaðgerða og takmörkunar á íþróttastarfi í kjölfar tilkynningar stjórnvalda 30. júlí.

Flestir sterkustu kylfingar landsins verða á meðal þátttakenda á mótinu, þar sem lítið er keppt erlendis um þessar mundir vegna kórónuveirunnar. 

Golfsamband Íslands sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu: 

Íslandsmótið í golfi mun fara fram 6.-9. ágúst á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Golfsamband Íslands hefur lagt fram tillögur til stjórnvalda um að leika keppnisgolf og jafnframt virða sóttvarnareglur. Var það gert í ljósi hertra sóttvarnaaðgerða og takmörkunar á íþróttastarfi í kjölfar tilkynningar stjórnvalda 30. júlí. Það er Golfsambandinu mikil ánægja að tilkynna að tillögurnar hafa verið samþykktar og mun Íslandmótið í golfi því fara fram á áður auglýstum tíma. 

Öryggi keppenda verður í forgrunni og verða nauðsynlegar ráðstafanir gerðar til að tryggja hreinlæti og öryggi eftir fremstu getu. Það er mikið tilhlökkunarefni að sjá bestu kylfinga landsins keppa um Íslandsmeistaratitlana en skráningu í Íslandsmótið lýkur kl. 23:59 á mánudag. Því er ljóst að Íslandsmeistarar í karla- og kvennaflokki verða krýndir sunnudaginn 9. ágúst. Sóttvarnaaðgerðir meðan á mótinu stendur verða kynntar þegar nær dregur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert