Hola í höggi á fyrsta keppnisdegi

Patrick Reed á hringnum í dag.
Patrick Reed á hringnum í dag. AFP

Bandaríski kylfingurinn Patrick Reed fór holu í höggi á fyrsta keppnisdegi Opna bandaríska meistaramótsins sem hófst í New York í dag. 

Reed sló draumahöggið á 7. braut Winged Foot vallarins og náði sér vel á strik í dag. Lauk hann leik á fjórum höggum undir pari vallarins og er í 2. sæti sem stendur en margir eiga eftir að ljúka fyrsta hringnum í kvöld. Er hann höggi á eftir Justin Thomas sem einnig hefur lokið leik. 

Tiger Woods lék á þremur yfir pari í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert