Frábær byrjun hjá Reed og Noren

Patrick Reed.
Patrick Reed. AFP

Margir af bestu kylfingum heims eru smám saman að hefja keppnistímabilið af þunga á PGA-mótaröðinni vestan hafs og í gær hófst Farmers Insurance Open á Torrey Pines í Kaliforníu. 

Bandaríkjamaðurinn Patrick Reed og Svíinn Alex Noren eru efsti að loknum fyrsta hringnum en þeir léku frábærlega og skiluðu inn skori upp á 64 högg. Eru þeir á 8 höggum undir pari. 

Leikið er á tveimur völlum í mótinu og því verður meira að marka stöðuna að loknum 36 holum af 72. 

Skorið hjá nokkrum völdum kylfingum:

-6 Gary Woodland 

-5 Adam Scott

-4 Rory McIlroy

-3 Tony Finau, Jordan Spieth, John Rahm, 

-2 Viktor Hovland, Xander Schauffele, Rickie Fowler, Bubba Watson. 

Par Brooks Koepka

Patrick Reed og kylfusveinninn skoða púttlínuna á hringnum í gær. …
Patrick Reed og kylfusveinninn skoða púttlínuna á hringnum í gær. Vissara að skoða hana almennilega. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert