Haraldur í gegnum niðurskurðinn

Haraldur Franklín Magnús hefur spilað vel í Suður-Afríku.
Haraldur Franklín Magnús hefur spilað vel í Suður-Afríku. mbl.is/Kristinn Magnússon

Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús er öruggur í gegnum niðurskurðinn á Dimension Data-mótinu í Suður-Afríku en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu, þeirri næststerkustu í Evrópu.

Haraldur lék sinn annan hring á mótinu í dag og lék á 69 höggum eða þremur höggum undir pari vallarins. Haraldur lék fyrsta hringinn á 70 höggum, tveimur undir pari, og er samtals á fimm höggum undir pari.

Ekki náðu allir kylfingar að ljúka leik í dag sökum myrkurs og ræðst það í fyrramálið hver niðurskurðarlínan verður. Haraldur er sem stendur í 33.-45. sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert