Guðmundur upp um tíu sæti á lokadeginum

Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Ljósmynd/seth@golf.is

Guðmundur Ágúst Kristjánsson fór upp um tíu sæti á lokadeginum á Range Servant Chal­lenge-mót­inu í golfi í Mal­mö í dag. Mótið er hluti af Áskor­enda­mótaröð Evr­ópu.

Guðmundur lék hringinn á 70 höggum, tveimur höggum undir pari, og lýkur leik á samtals fjórum höggum undir pari og í 45. sæti ásamt sex öðrum kylfingum. Besti hringur Guðmundar kom á fyrsta hring þegar hann lék á fjórum höggum undir pari.

Andri Þór Björnsson og Haraldur Franklín Magnús léku einnig á mótinu en þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert