Haraldur efstur eftir fyrsta hring

Haraldur Franklín Magnús lék frábærlega í dag.
Haraldur Franklín Magnús lék frábærlega í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur úr GR, er efstur eftir fyrsta hring á Áskorendamótinu í Brittany í Frakklandi eftir að hafa leikið á sex höggum undir pari í dag.

Haraldur er efstur ásamt Frakkanum Julien Brun og Suður-Afríkumanninum Jacques Blaauw, sem léku einnig á sex höggum undir pari á fyrsta hring.

Haraldur átti afar góðan dag og náði sjö fuglum og einum skolla.

Annar hringur verður leikinn á morgun, en mótið í Frakklandi hófst í dag og lýkur næstkomandi sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert