Andri, Axel og Ragnhildur efst - tvö fóru holu í höggi

Ragnhildur Kristinsdóttir er efst í kvennaflokki.
Ragnhildur Kristinsdóttir er efst í kvennaflokki. mbl.is/Kristinn Magnússon

Andri Már Óskarsson úr Golfklúbbi Selfoss og Axel Bóasson úr Keili eru efstir í karlaflokki og Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur í kvennaflokki eftir tvo keppnisdaga af þremur í Hvaleyrarbikarnum í golfi sem nú stendur yfir hjá Keili í Hafnarfirði.

Andri Már og Axel Bóasson eru báðir á 5 höggum undir pari eftir tvo hringi. Fast á hæla þeirra koma Keilismennirnir Rúnar Arnórsson og nýkrýndur klúbbmeistari Keilis, Daníel Ísak Steinarsson, báðir á tveimur höggum undir pari. Lægsta skor dagsins í dag í karlaflokki átti Andri Már en hann lék 18 holurnar á 66 höggum.

Andri Már Óskarsson er annar tveggja efstu í karlaflokki.
Andri Már Óskarsson er annar tveggja efstu í karlaflokki. mbl.is/Styrmir Kári

Í kvennaflokki er Ragnhildur á einu höggi yfir pari, en hún lék langbest á hringnum í dag í kvennaflokki og lék hringinn á 69 höggum. Ragnhildur hefur fimm högga forystu á Örnu Rún Kristjánsdóttur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar fyrir lokahringinn á morgun.

Tveir kylfingar fóru holu í höggi á öðrum keppnisdegi, Daníel Ísak Steinarsson á fjórðu braut vallarins og Hekla Ingunn Daðadóttir á  fimmtándu braut.

Axel Bóasson er annar tveggja efstu í karlaflokki.
Axel Bóasson er annar tveggja efstu í karlaflokki. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert