Birgir Leifur og Björgvin Þorsteins mætast

Björgvin Sigurbergsson og Björgvin Þorsteinsson í Einvíginu á Nesinu.
Björgvin Sigurbergsson og Björgvin Þorsteinsson í Einvíginu á Nesinu. mbl.is/Árni Sæberg

Áhorfendur fá tækifæri til að sjá þrjá af sigursælustu kylfingum í sögu Íslandsmótsins í golfi í góðgerðarmótinu árlega, Einvíginu á Nesinu, á frídegi verslunarmanna. 

Sjöfaldur Íslandsmeistari, Birgir Leifur Hafþórsson, er skráður til keppni sem og Björgvin Þorsteinsson sem er sexfaldur Íslandsmeistari. Þá verður Björgvin Sigurbergsson einnig með en hann er fjórfaldur Íslandsmeistari. Ekki gefst oft kostur á því núorðið að sjá þessa kappa takast á á golfvellinum. 

Birgir Leifur Hafþórsson í Einvíginu á Nesinu.
Birgir Leifur Hafþórsson í Einvíginu á Nesinu. mbl.is/Arnþór Birkisson


Björgvin Sigurbergsson og Birgir Leifur hafa tvívegis unnið mótið og Björgvin Þorsteinsson vann fyrsta mótið árið 1997 en Einvígið á Nesinu hefur verið haldið á hverju ári á golfvellinum á Seltjarnarnesi síðan þá. 

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir með verðlaunagripinn sem hún hlaut fyrir að …
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir með verðlaunagripinn sem hún hlaut fyrir að ná öðru sæti á Opna breska áhugamannamótinu. Aðsend

Ekki eru einiungis „gamlar kempur“ með í mótinu því atvinnukylfingarnir Axel Bóasson, Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús verða allir með.

Þá verður Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir með en hún náði sögulegum árangri í sumar á Breska áhugamannamótinu og lék þar til úrslita.   

Í ár verður keppt í þágu BUGL sem veitir börnum og unglingum með geð- og þroskaraskanir margvíslega þjónustu á Landspítalanum. 

Mótið mun hefjast klukkan 13 á mánudaginn en frekari upplýsingar frá Nesklúbbnum er að finna hér.

Keppendur:

Andri Þór Björnsson
Axel Bóasson
Birgir Leifur Hafþórsson
Bjarni Þór Lúðvíksson
Björgvin Sigurbergsson
Björgvin Þorsteinsson
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Haraldur Franklín Magnús
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir
Karlotta Einarsdóttir
Ragnhildur Kristinsdóttir

Sigurvegarar frá upphafi:

1997      Björgvin Þorsteinsson
1998      Ólöf María Jónsdóttir
1999      Vilhjálmur Ingibergsson
2000      Kristinn Árnason
2001      Björgvin Sigurbergsson
2002      Ólafur Már Sigurðsson
2003      Ragnhildur Sigurðardóttir
2004      Magnús Lárusson
2005      Magnús Lárusson
2006      Magnús Lárusson
2007      Sigurpáll Geir Sveinsson
2008      Heiðar Davíð Bragason
2009      Björgvin Sigurbergsson
2010      Birgir Leifur Hafþórsson
2011      Nökkvi Gunnarsson
2012      Þórður Rafn Gissurarson
2013      Birgir Leifur Hafþórsson
2014      Kristján Þór Einarsson
2015      Aron Snær Júlíusson
2016      Oddur Óli Jónasson
2017      Kristján Þór Einarsson
2018      Ragnhildur Sigurðardóttir
2019      Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2020      Haraldur Franklín Magnús

Haraldur Franklín Magnús í Einvíginu á Nesinu en hann sigraði …
Haraldur Franklín Magnús í Einvíginu á Nesinu en hann sigraði í fyrra. mbl.is/Arnþór Birkisson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert