Guðrún Brá lauk keppni á sex höggum yfir pari

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili. Ljósmynd/GSÍ

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, hefur lokið keppni á Opna Didriksons-mótinu í Skaftö í Svíþjóð. Guðrún Brá endaði mótið á því að leika á sex höggum yfir pari.

Hún lék lokahringinn á 72 höggum og endar þar með jöfn í 38. sæti á mótinu ásamt sex öðrum kylfingum.

Nokkrar slæmar holur urðu þess valdandi að Guðrún Brá náði ekki að blanda sér í toppbaráttuna að þessu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert