Guðrún Brá á einu undir pari

Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék vel á öðrum hring í nótt.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék vel á öðrum hring í nótt. Ljósmynd/Tristan Jones/LET

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili í Hafnarfirði, átti afar góðan annan hring á Women‘s NSW Open-mót­inu á Evr­ópu­mótaröðinni í golfi í Ástr­al­íu í nótt.

Guðrún Brá lék holurnar 18 á 71 höggi, einu höggi undir pari.

Samtals hefur hún leikið hringina tvo á 146 höggum og er þannig samtals á tveimur höggum yfir pari.

Með hringnum í nótt er Guðrún Brá búin að vinna sig talsvert upp á listanum og er nú í 35. til 41. sæti á mótinu.

Svíinn Maja Stark leiðir á því en hún er í efsta sæti eftir að hafa leikið hringina tvo á 137 höggum, sjö höggum undir pari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert