Ragnhildur íþróttakona ársins
Kylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR var útnefnd íþróttakona ársins hjá Eastern Kentucky-háskólanum í Bandaríkjunum.
Ragnhildur hefur átt góðu gengi að fagna á tímabilinu, þar sem hún hefur unnið tvo einstaklingstitla.
Þá mun hún leika í svæðiskeppninni 9.-11. maí næstkomandi. Mun hún leika í einstaklingskeppni, þrátt fyrir að liðið hennar hafi ekki komist í keppnina.
Your 2022 Female Athlete of the Year is @RKristinsd!#CCA22 | #GoBigE pic.twitter.com/HHk7gOaXDO
— EKU Sports (@EKUSports) May 6, 2022