Ragnhildur Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir þrjá hringi á úrtökumóti fyrir LPGA-mótaröðina í golfi í nótt. Hún náði sér ekki á strik á þriðja hring og féll því úr leik. Leikið var á Rancho Mirage-vellinum í Kaliforníu.
Ragnhildur lék annan og þriðja hring á fjórum höggum yfir pari og lauk leik á samtals átta högum yfir pari, en hún lék fyrsta hring á parinu.
Ragnhildur fékk fimm skolla og einn fugl á holunum 18 í nótt en niðurskurðarlínan var við tvö högg yfir parið.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er eini íslenski kylfingurinn sem hefur verið með keppnisrétt á LPGA-mótaröðinni, þeirri sterkustu í heimi.