Axel níundi í Danmörku

Axel Bóasson lauk keppni í Danmörku í dag.
Axel Bóasson lauk keppni í Danmörku í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Axel Bóasson hafnaði í núnda sæti á Great Northern Challenge golfmótinu sem lauk í Kerteminde í Danmörku í dag og var liður í Nordic Golf mótaröðinni.

Axel byrjaði mótið mjög vel á miðvikudaginn og var annar eftir fyrsta hringinn á 66 höggum. Hann lék síðan á 73 höggum í gær og 72 höggum í dag og endaði samtals á 211 höggum, fimm undir pari vallarins, og var  tveimur höggum frá fimmta sætinu.

Frederik Birkelund frá Danmörku sigraði á 202 höggum, fjórtán höggum undir pari vallarins. Tobias Edén frá Svíþjóð var á 12 undir pari og Erik Lindwall frá Svíþjóð þriðji á 10 undir pari.

Skor efstu manna eftir fyrsta hringinn þar sem Axel var …
Skor efstu manna eftir fyrsta hringinn þar sem Axel var í öðru sæti. Ljósmynd/Finnur Bessi Sigurðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert