Guðrún enn á pari á Spáni

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Ljósmynd/Tristan Jones/LET

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili lék annan sinn á lokastigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Leikið er á La Manga-vellinum á Spáni.

Guðrún lék fyrsta hringinn í gær á pari og gerði svo slíkt hið sama í morgun. Hringurinn í dag var öllu stöðugri en í gær en hún lék í kringum parið allan tímann í dag.

Eftir fyrstu tvo daga mótins er Guðrún jöfn fjölmörgum öðrum kylfingum í 35.-51. sæti en mótinu lýkur 21. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert