Þessi endalausu öskur eru of mikið af því góða

Rory McIlroy fagnar sigrinum langþráða.
Rory McIlroy fagnar sigrinum langþráða. AFP/Michael Reaves

Vinnufélagi minn á annarri deild á Morgunblaðinu skrifaði ljósvaka í þriðjudagsblaðið þar sem hann lýsti yfir ósætti sínu með lýsingu sjónvarpsmanna á Stöð 2 sport á Mastersmótinu, fyrsta risamóti ársins í golfi.

Þótt ég sé rúmum tveimur áratugum yngri en ­höfundur þess ljósvaka er ég mjög sammála. Lætin í útsendingunni voru hálffáránleg. Ríkharð Óskar Guðnason missti sig nokkrum sinnum í öskrunum meðan á lokakaflanum stóð.

Vissulega var spennan mikil, dramatíkin ekki minni og Rory McIlroy vann sögulegan sigur. Hann kastaði frá sér góðri stöðu en bjargaði sér að lokum. Það þýðir samt ekki að áhorfendur vilji endilega hlýða á mikil og löng öskur.

Höfundur þessa bakvarðar er mikill aðdáandi Stöðvar 2 sport og þeirrar glæsilegu dagskrár sem stöðin býður upp á. Stjórnendur hennar eiga mikið hrós skilið fyrir sitt framlag í garð íþróttanna á Íslandi.

Þessi endalausu öskur eru hins vegar of mikið af því góða. Lenskan í lýsingum í körfubolta er orðin hin furðulegasta. Menn keppast við að öskra, gefa frá sér skrítin hljóð og vera fyndnir. Sumir lýsendur gjörsamlega tapa sér síðan þegar skorað er mark í fótboltaleikjunum.

Bakvörðurinn í heild sinni er á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert