Hulda Clara hrósaði sigri í Arizona

Hulda Clara Getsdóttir.
Hulda Clara Getsdóttir. Ljósmynd/GKG

Hulda Clara Gestsdóttir, Íslandsmeistari í golfi úr GKG, bar sigur úr býtum í Summit League háskólamótinu í Arizona-ríki í Bandaríkjunum í gærkvöldi.

Hulda Clara, sem keppir fyrir hönd Denver-háskólans, var eini kylfingurinn í mótinu sem lék undir pari vallarins en hún lék hringina þrjá á 70-72-67, eða fjörum höggum undir pari og sigraði sannfærandi með fimm högga mun.

Hulda vann sinn fyrsta sigur á háskólaferlinum á þessu sama móti fyrir ári síðan og náði hún því að verja titilinn í ár.

Mótið var úrslitamót allra skóla í Summit League deildinni þar sem sigurliðið tryggði sig áfram í svæðiskeppnina sem fer fram á sex stöðum í Bandaríkjunum í næsta mánuði.

Denver-háskólinn vann með 19 högga mun í deildinni og var þetta sjötta árið í röð sem skólinn vinnur deildarkeppnina. Það kemur svo í ljós eftir nokkra daga hvar Hulda Clara keppir í svæðiskeppninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert