Kylfingurinn efnilegi Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur verið valinn til að keppa á sterkasta áhugamannamóti heims, Arnold Palmer Cup.
Þar mun hann leika með liði alþjóðlegra kylfinga sem allir koma úr bandaríska háskólagolfinu, gegn liði Bandaríkjanna.
Tólf karlar og tólf konur eru í hvoru liði en keppt verður á Congaree-golfvellinum í Suður-Karólínu dagana 5. til 7. júní, með sama keppnisfyrirkomulagi og í Ryder-bikarnum og Solheim-bikarnum.
Á vef Golfsambands Íslands segir að um sé að ræða sterkasta áhugamannamót heims en í fyrra hafi það fengið 1.000 stig af 1.000 mögulegum í styrkleika á heimslista áhugakylfinga.
Gunnlaugur er fyrsti íslenski kylfingurinn sem fær boð um að taka þátt í mótinu. Hann er fæddur árið 2005, stundar nám við LSU-háskólann í Louisiana, og hefur gengið afar vel á fyrsta ári sínu í háskólagolfinu.
Hann hefur unnið eitt mót og verið meðal efstu sex keppenda á sex mótum af ellefu í vetur, er kominn í 41. sætið á heimslista áhugamanna. Þá er hann í 21. sætinu á lista yfir bestu háskólakylfingana í Bandaríkjunum.