Bandaríski kylfingurinn Scottie Scheffler vann PGA-meistaramótið, eitt af fjórum risamótunum í golfi, í fyrsta sinn á ferlinum í kvöld.
Scheffler lék hringina fjóra á Quail Hollow-vellinum í Norður-Karólínu á 11 höggum undir pari, fimm höggum betur en næstu menn.
Bryson DeChambeau, Davis Riley og Harris English voru í öðru til fjórða sæti á sex höggum undir pari.
Scheffler, sem er 28 ára, hefur nú unnið tvö risamót á ferlinum en hann vann Masters-mótið bæði 2022 og 2024.