Gunnlaugur Árni Sveinsson, kylfingur úr GKG, tekur þátt í lokaúrtökumóti fyrir US Open á Bent Tree Country Club vellinum í Dallas í Texasríki í Bandaríkjunum.
Gunnlaugur fer af stað rúmlega 12 að íslenskum tíma. 86 kylfingar munu berjast um 7 laus sæti, en þar á meðal eru margfaldir sigurvegarar á PGA mótaröðinni og því ljóst að samkeppnin verður hörð.
Lokaúrtökumót US Open er síðasta stigið í átt þátttöku í einu af fjórum risamótum golfsins. Þar leika kylfingar 36 holur á einum degi, og aðeins þeir efstu tryggja sér sæti á sjálfu mótinu.
Lokaúrtökumótin fara fram á 13 stöðum, en Dagbjartur Sigurbrandsson mun leika í einu þeirra þann 2. júní.
Gunnlaugur Árni verður í holli með tveimur öflugum kylfingum:
Thomas Rosenmüller: Þjóðverji sem leikur á PGA mótaröðinni og var liðsfélagi Hlyns Bergssonar í háskólagolfinu hjá North Texas.
Lance Simpson: Bandarískur áhugamaður sem leikur fyrir háskólalið Tennessee. Hann er í 41. sæti á heimslista áhugamanna (WAGR), einu sæti fyrir neðan Gunnlaug, og var einu höggi á eftir honum í nýlegu svæðismóti NCAA.
Margir þekktir kylfingar taka þátt í lokaúrtökumótinu í Dallas. Meðal þeirra eru LIV kylfingarnir:
Abraham Ancer
Branden Grace
Cameron Tringale
Carlos Ortiz
Kevin Na
Sergio Garcia