Dagný Skúladóttir til liðs við ÍBV

Dagný Skúladóttir.
Dagný Skúladóttir. Morgunblaðið/Jim Smart

Landsliðskonan Dagný Skúladóttir sem leikið hefur með FH undanfarin ár, hefur ákveðið að leika með bikarmeisturum ÍBV á komandi leiktíð. Dagný er þó búsett í Frakklandi, þar sem unnusti hennar Gunnar Berg Viktorsson er leikmaður með PSG. Vegna þessa er enn nokkuð óljóst hversu mikið Dagný mun leika með ÍBV.

Samkvæmt heimildum frá handknattleiksdeild ÍBV, fékk Dagný ekki leikheimild í efstu deild í Frakklandi, vegna tímasetningu félagaskipta. Þess vegna mun hún hafa ákveðið að reyna að leika á Íslandi í vetur. Dagný var orðuð við Val í sumar, en systur hennar Drífa og Hrafnhildur munu leika á Hlíðarenda í vetur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert