Óvæntur sigur FH á Stjörnunni

Stjarnan tapaði heima fyrir FH.
Stjarnan tapaði heima fyrir FH. Þorvaldur Örn Kristmundsson

FH gerði sér lítið fyrir í dag og lagði efsta lið N1 deildar kvenna í handbolta, Stjörnuna 26:25 í Ásgarði. Staðan í leikhléi var 16:11 fyrir FH,. Ragnheiður Guðmundsdóttir gerði 7 mörk fyrir FH og Sólveig Kjærnested 7 fyrir Stjörnuna. Valsstúlkur nýttu sér þetta og skutust á toppinn með 25:12 sigri á Akureyri þar sem Nora Valavic gerði sex mörk fyrir Val.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert