Sigurbergur besti leikmaðurinn

Sigurbergur Sveinsson í leik með Haukum.
Sigurbergur Sveinsson í leik með Haukum. mbl.is/Brynjar Gauti

Sigurbergur Sveinsson, stórskyttan unga í liði Hauka ,var í hádeginu útnefndur besti leikmaður í umferðum 15-21 í N1 deild karla í handknattleik. Sigurbergur lét mikið að sér kveða með Hafnarfjarðarliðinu sem er komið men aðra hönd á Íslandsmeistaratitilinn en eftir sigur á Val í gær eru Haukar með 8 stiga forskot á toppnum.

Úrvalslið umferða 15-21 lítur þannig út:

Markvörður:  Ólafur Haukur Gíslason, Val.

Línumaður:  Ingvar Árnason, Val.

Vinstra horn:  Baldvin Þorsteinsson, Val.

Hægra horn:  Arnór Gunnarsson, Val

Vinstri skytta:  Sigurbergur Sveinsson, Haukum.

Miðjumaður:  Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK.

Hægri skytta:  Rúnar Kárason, Fram.

Besti þjálfarinn:  Aron Kristjánsson, Haukum.

Bestu dómarar:  Gunnar Jarl Jónsson og Hörður Aðalsteinsson.

Besta umgjörð:  Valur.

Besti leikmaður:  Sigurbergur Sveinsson, Haukum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert